Bjarni Benediktsson

ID: 7125
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1933

Bjarni Benediktsson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1857. Dáinn 11. nóvember, 1933 í N. Dakota.

Maki: 8. apríl, 1886 Ingibjörg Guðvarðardóttir f. í Skagafjarðarsýslu 8. desember, 1864, d. 4. nóvember, 1949.

Börn: 1. Margrét f. 18. janúar, 1887, d. 15. mars, 1941 2. Ólafur Benedikt f. 23. júní, 1889, d. 6. apríl, 1901 3. Ingibjörg Hólmfríður f. 14. maí, 1890 4. Guðvarður Vilhjálmur f. 18. janúar, 1892, d. 15. mars, 1947 5. Bjarni Óskar f. 18. janúar, 1893, d. 24. september, 1893 6. Lilja Sigríður f. 20. apríl, 1894 7. Skúli Páll f. 26. janúar, 1896 8. Jóhanna Sigurrós f. 19. apríl, 1898 9. Óli Leó f. 16. janúar, 1904.

Bjarni fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með foreldrum sínum og systkinum. Þau héldu áfram til Nýja Íslands. Þaðan flutti Bjarni í Thingvallabyggð í N. Dakota árið 1880. Ingibjörg fór vestur sama ár með móður sinni, Margréti Guðmundsdóttur.