Bjarni Bjarnason

ID: 11099
Fæðingarár : 1856
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1936

Bjarni Bjarnason Mynd VÍÆ3

Aðalborg Jónsdóttir Mynd VÍÆ3

Bjarni Bjarnason fæddist 13. ágúst, 1856 í Húnavatnssýslu. Dáinn 14. apríl, 1936.

Maki: 7. nóvember, 1900 Aðalborg Jónsdóttir f. 4. júní, 1862, d. 26. október, 1915.

Börn: 1. Björn f. 16. janúar, 1902 2. Margrét Sigurlaug f. 16. janúar, 1902, þau voru tvíburar.

Bjarni fór einsamall vestur til Winnipeg árið 1887 og vann þar fyrst um sinn. Flutti vestur að hafi og vann í Seattle um hríð og víðar þar vestra. Flutti þaðan til N. Dakota og loks í Geysisbyggð í Nýja Íslandi árið 1900. Aðalborg fór vestur með fósturforeldrum sínum, Birni Halldórssyni og Hólmfríði Einarsdóttur árið 1884. Bjarni og Aðalborg bjuggu á Bjarkalandi.