Bjarni Davíðsson

ID: 8837
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Bjarni Davíðsson og Sigríður Pétursdóttir

Bjarni Davíðsson fæddist 1864 á Dvergsstöðum í Eyjafjarðarsýslu.

Maki: 19. maí 1891 Sigríður Pétursdóttir fædd sama ár á Stóru Laugum í S. Þingeyjarsýslu.

Börn: 1. Jódís 2. Gyða 3. Sigríður

Þau fluttu vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1893. Dvöldu fáeina mánuð í Winnipeg en fóru því næst um haustið til Argyle. Þar bjuggu þau í tvö ár. Árið 1895 fluttu þau á Big Point þar sem Bjarni nam land og hóf búskap. Hann tók virkan þátt í uppbyggingu samfélagsins á Big Point. Hann var einn af stofnendum lestrarfélagsins og studdi það alla tíð. Hann hvatti til byggingar samkomuhúss, gaf bæði tíma og efni í húsið sem hlaut nafnið Herðubreið, sama og söfnuður byggðarinnar. Árið 1906 tóku hjónin þá ákvörðun að færa sig um set. Þau fluttu vestur til Foam Lake í Vatnabyggð í Saskatchewan þar sem þau bjuggu til ársins 1912. Sigríður veiktist og því var ákveðið að bregða búi. Þau fluttu í bæinn Saskatoon og bjuggu þar í nokkur ár þar til Sigríður lést. Bjarni flutti þá til Leslie í Vatnabyggð. Fjölmörg systkini Bjarna fluttu vestur um haf og bjuggu sum nærri bróður sínum.