Bjarni Einar Guðmundsson fæddist í N. Múlasýslu árið 1871. Dáinn í Lincoln sýslu í Minnesota 9. maí, 1945.
Maki: Stefanía Einarsdóttir f. 21. ágúst, 1872 í N. Múlasýslu d. 2. október, 1960 í Yellow Medicine sýslu í Minnesota. Fanny Gudmundson vestra.
Börn: 1. Einar B. f. 21. júlí, 1893 2. Hallfríður (Frida) Ingibjörg f. 8. desember, 1895 3. Herdís (Daisy) Guðrún f. 13. apríl, 1898 4. Guðmundur f. 25. febrúar, 1900, d. 8. apríl, 1986 5. Kristín (Christine) f. 25. júní, 1901 6. Sigrún Bergþóra f. 14. febrúar, 1902 7. Njáll Þorvaldur (Walter) f. 7. október, 1903 8. Albert Newton f. 19. febrúar, 1908.
Bjarni fór vestur 1888 með foreldrum sínum, Guðmundi Guðmundssyni og Ingibjörgu Bjarnadóttur og systkinum. Þau settust að í Lincoln sýslu í Minnesota. Bjarni er sagður hafa verið trúlofaður Stefaníu og átti að hafa hvatt Einar, föður hennar, til að flytja vestur þangað. Sú varð raunin, Stefanía kom til Minnesota árið 1892 og varð eftir hjá Bjarna þegar foreldrar hennar, Einar Jónsson og Hallfríður Þorgrímsdóttir fóru áfram vestur til N. Dakota. Bjarni og Stefanía bjuggu lengstum í Lincoln sýslu.
