ID: 12072
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Bjarni Pétursson Mynd SÍND

Þóra Sigríður Jónsdóttir Mynd SÍND
Bjarni Pétursson fæddist árið 1848 í N. Múlasýslu. Dáinn í Blaine árið 1930
Maki: Þóra Sigríður Jónsdóttir f. 1854 í N. Þingeyjarsýslu, d. 20. mars, 1931 í Blaine.
Börn: 1. Ólöf Þorgerður f. í Hnausabyggð 27. febrúar, 1878, d. í N. Dakota ca 1894 2. Jón f. í Hnausabyggð 15. apríl, 1880, d. 23. maí, 1880 3. Pétur f. í N. Dakota 4. október, 1882 4. Jón Nýmundur f. 1885 5. Friðjón f. 1889 6. Óli Theodór f. 31. janúar, 1896 í N. Dakota. Þau misstu fjögur börn.
Þau fluttu vestur árið 1876 og settust að í Breiðuvík í Nýja Íslandi. Þau fluttu þaðan árið 1881 og settust að í Parkbyggð í N. Dakota. Árið 1906 seldu þau land sitt og fluttu vestur til Blaine í Washingtonríki.
