ID: 12225
Fæðingarár : 1858
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Björg Sigríður Ásbjörnsdóttir fæddist í N. Múlasýslu, 8. febrúar, 1858. Bertha Kline vestra.
Maki: 2. maí, 1893 Eymundur Metúsalem Arngrímsson f. 3. maí, 1857 í N. Múlasýslu. Edmund Anderson eða E. M. Anderson vestra.
Börn: 1. Earl Emil f. 21. apríl, 1894 í Minneapolis 2. Marie Emily Anderson f. 15. nóvember, 1896 í Minneapolis.
Björg fór vestur til Kanada árið 1878 og þaðan lá svo leið hennar suður til Minnesota en þangað fóru foreldrar hennar og nokkur systkini. Nánast öll tóku nafnið Kline (Cline) þegar þangað var komið. Metúsalem flutti vestur til Kanada með systkinum sínum árið 1879 og settust þau að í Minnesota. Metúsalem bjó nærri Minneota þar til hann kvæntist en þá flutti hann til Minneapolis og bjó þar um árabil.
