Björg Björnsdóttir

ID: 11350
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1910

Björg Björnsdóttir fæddist 16. september, 1862 í N. Múlasýslu. Dáin í Winnipeg 21. október, 1910.

Maki: 1888 Björn Ágústsson fæddist í Húnavatnssýslu 24. maí, 1858. Dáinn 21. október, 1911 í Winnipeg. Blöndal vestra.

Börn: 1. Ágúst f. 8. júlí, 1889 í Edinburg í N. Dakota, d. 6. janúar, 1948 2. Jóhanna f. 1894 3. Björn f. 1896 4. Margrét f. 1902. Hún var ættleidd.

Björg flutti vestur til N. Dakota árið 1887 og var samferða systur sinni, Margréti og hennar manni, Halldóri Hjálmarssyni. Björn lærði trésmíði í Kaupmannahöfn og fór vestur til Winnipeg í Manitoba með móður sinni, Jóhönnu Jónsdóttur og Jóni, bróður sínum. Hann fann fljótlega vinnu í borginni en árið 1888 flutti hann suður í Thingvallabyggð í N. Dakota þar sem hann bjó í sex ár. Þaðan flutti hann vestur að Kyrrahafi en 1896 sneri hann aftur til Winnipeg og þar bjó fjölskyldan síðan.