Björg Hallgrímsdóttir

ID: 11674
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1936

Björg Elízabet Hallgrímsdóttir fæddist 11. nóvember, 1864 í N. Múlasýslu. Dáin í Piney í Manitoba 13. júlí, 1936, grafin í Winnipeg.

Maki: 31. ágúst, 1883 John Franklin McNab, d. í Ontario 1906.

Börn: 1. Annie Azelia f. 7. júní, 1884 í Garðar, N.Dakota 2. Susan Margaret f. 25. október, 1885 í Garðar 3. Flora Elizabeth f. 23. júlí, 1887 í Grand Forks 4. Lily Sarah Katherine f. 5. apríl, 1889 í Brainerd, Minnesota 5. James Archibald f. 15. maí, 1891 í Ignace, Ontario 6. Olive Christina f. 18. desember, 1892 í Gardar, N. Dakota 7. Rósa f. 3. janúar, 1895 í Winnipeg 8. Augusta Camellia f. 27. júní, 1896 í Winnipeg 9. Guðmundur Walter Alexander f. 14. apríl, 1897 í Winnipeg 10. Halldóra Guðrún f. 12. mars, 1900 í Winnipeg 11. Edna Barbara f. 20. ágúst, 1902 í Piney í Manitoba 12. Ethel Francis Gwenoline f. 17. ágúst, 1904 í Piney.

Björg fór vestur til Nýja Íslands árið 1876 með foreldrum sínum, Hallgrími Guðmundssyni og Guðrúnu M Guðmundsdóttur og systkinum. Þau fluttu suður til N. Dakota árið 1880.  Björg og John búa í Garðar frá 1883 til ársins 1887, þá hefjast flutningar sem sést á fæðingarstöðum barna þeirra. Á árunum 1887-1891 fæðast þeim börn í Grand Forks í N. Dakota, Brainerd í Minnesota og Ignace í Ontario. Þau snúa aftur til Garðar því þar fæðist barn árið 1892 en síðan liggur leiðin norður til Winnipeg. Loks setjast þau að í Piney, sunnarlega í Manitoba.