Björg Stefánsdóttir fæddist 29. mars, 1875 í N. Múlasýslu. Dáin í Minnesota 10. febrúar, 1950.
Maki: 28. nóvember, 1902 Jón Arngrímsson f. 3. nóvember, 1876 í Lincoln sýslu, fyrsta barn íslenskt fætt í Minnesota, d. 19. júní, 1950. John A. Johnson vestra.
Börn: 1. María Cecelia f. 23. mars, 1904 2. Jóhanna (Joan) f. 8. mars, 1905 3. John Willard f. 12. maí, 1906 4. Ragnhildur f. 11. maí, 1908 5. Þórdís Anna f. 10. desember, 1909 6. Haraldur f. 1910 7. Doris Petrína f. 27. október, 1912 8. Elaine Marvel f. 5. apríl, 1916.
Björg flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1893 með bróður sínum, Guðmundi. Þau fóru til Minnesota þar sem bjuggu skyldmenni, meðal þeirra var Gunnlaugur Pétursson frá Hákonarstöðum, fyrsti, íslenski landnámsmaðurinn í Minnesota. Jón var sonur Arngríms Jónssonar og Jóhönnu Jónsdóttur sem vestur fóru árið 1876. Þau fóru frá Kanada suður til Wisconsin og þaðan vestur í Lincoln sýslu í Minnesota. Jón og Björg bjuggu fyrst í Lincoln sýslu en árið 1918 settust þau að á landi suður af Minneota í Lyon sýslu.
