ID: 11149
Fæðingarár : 1866
Dánarár : 1933
Björn Björnsson fæddist 23. október, 1866 í Húnavatnssýslu. Dáinn á Gimli í Manitoba 22. júní, 1933.
Maki: Guðrún Sólmundsdóttir fæddist 6. október, 1875, d. 1. ágúst, 1950 í Lundar, Manitoba.
Börn: 1. Benjamín Franklin f. 1. júní, 1898 2. Björn Edvald f. 1903, d. 1976 3. Þorsteinn.
Björn flutti til Vesturheims árið 1887 og settist að á Gimli. Þar var hann lögregludómari í mörg ár. Guðrún fór vestur árið 1888.
