Björn Björnsson

ID: 13239
Fæðingarár : 1881

Björn Björnsson Mynd VÍÆ I

Björn Björnsson fæddist í N. Múlasýslu 17. maí, 1881.

Maki: 22. júní, 1910 Jóna Björg Högnadóttir f. í Laufási í Lundarbyggð í Manitoba.

Börn: 1. Björn Högni f. 3. desember, 1910 2. Guðmundur Eiríkur f. 15. ágúst, 1914 3. Magnús f. 11. júní, 1918 4. Guðný Margrét f. 16. desember, 1920 5. Sigrún Petra f. 9. september, 1922 6. Lára Ásthildur f. 11. febrúar, 1925 7. Þorvaldur Stefán f. 24. júní,1931.

Foreldrar Björns voru Björn Austmann og Jónína Guðmundsdóttir í Lundar. Jóna Björg var dóttir Högna Guðmundssonar og Guðrúnar Guðnýju Jónsdóttur, landnema í Laufási í Lundarbyggð. Björn ólst upp á Austurlandi en tvítugur flutti hann til Vesturheims með foreldrum sínum árið 1901. Bjó í Garðar í N. Dakota í sjö ár en þaðan lá leið hans norður í Lundarbyggð þar sem hann bjó eftir það. Var bóndi.