Björn Björnsson

ID: 4082
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1895

Björn Björnsson fæddist 11. maí, 1867 í Dalasýslu. Dáinn í Akrabyggð í N. Dakota árið 1895.

Ókvæntur og barnlaus.

Björn flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1874 með föður sínum, Birni Jósúasyni. Ári seinna fóru þeir vestur til Manitoba og settust að í Nýja Íslandi. Þeir fluttu þaðan suður til N.Dakota og settust að í Akrabyggð.