Björn Björnsson

ID: 5167
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : Strandasýsla
Dánarár : 1931

Björn Björnsson fæddist í Strandasýslu 25. apríl, 1867. Dáin í Alberta 26. janúar, 1931.

Maki: Margrét Gísladóttir f. 1875 í S. Múlasýslu, d. í Markerville 22. mars, 1909.

Börn: 1. Anna f. 1891, d. 1958 2. Guðbjörg Þórdís f. 1894, d. 1971 3. Björn f. 1896, d. 1963 4. Guðrún Helga f. 1897, d. 1992 5. Gísli Þorsteinn f. 1900, d. 1978 6. Margrét Jósefína f. 1902, d. 1968 7. Þorbjörg Elísabet f. 1905, d. 1961 8. Vilborg Ágústa f. 1907, d. 1908 9. Jónína f. 1909, d. 1909.

Björn flutti vestur til Winnipeg árið 1887. Margrét fór vestur til Nýja Íslands árið 1878 með foreldrum sínum, Gísla Eiríkssyni og Önnu Einarsdóttur. Þar var fjölskyldan í 3 ár, flutti þá til N. Dakota og nam Gísli land nærri Hensel. Þaðan lá svo leiðin vestur til Alberta árið 1891 og nam Gísli land nærri Markerville. Björn kom þangað um líkt leyti.