Björn Guðmundsson

ID: 11644
Fæðingarár : 1893
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Björn Guðmundsson fæddist 8. apríl, 1893 í N. Múlasýslu.

Maki: 1920 Guðlaug Jónasdóttir f. í Siglunesbyggð 8. febrúar, 1900.

Börn: 1. Stanley 2. Jónas 3. Leslie 4. Konráð 5. Marvin.

Björn var sonur Guðmundar Jónssonar og Jónínu Björnsdóttur sem vestur fluttu með börn sín árið 1903. Þau settust að í Álftavatnsbyggð og bjuggu þar til ársins 1908. Þá fluttu þau norður í Siglunesbyggð og þar ólst Björn upp. Guðlaug var dóttir Jónasar Kristjáns Jónassonar er vestur flutti nýkvæntur árið 1883 og seinni konu hans, Guðrúnu Guðmundsdóttur. Björn keypti land í byggðinni af Andrési Gíslasyni árið 1920, reisti á því bú og bjó þar.