
Björn Halldórsson Mynd SÍND

Hólmfríður Einarsdóttir Mynd SÍND
Björn Halldórsson fæddist 20. mars, 1831 í N. Múlasýslu. Dáinn 9. maí, 1920 í Winnipeg og jarðaður þar..
Maki: 1856 Hólmfríður Einarsdóttir f. 1832 í N. Múlasýslu, d. 1904 í Garðar..
Börn: 1. Margrét f. 8. maí, 1857 2. Björg f. 16. september, 1862 3. Ólöf f. 1864 4. Guðrún f. 1867 5. Magnús f. 28. nóvember, 1869 6. Björn f. 18. júlí, 1881 7. Halldór f. 16. september, 1876. Misstu tvö börn á Íslandi, Þorbjörgu 1873 og Halldór 1876.
Björn flutti vestur um haf árið 1884 og fór til N. Dakota þar sem hann keypti land í Thingvallabyggð suður af Mountain. Þar bjuggu þau til ársins 1897, þá hætti Björn búskap og fór norður til Winnipeg í Manitoba þar sem hann var einhvern tíma. Hólmfríður dvaldi þá hjá dætrum sínum í Garðar.
