ID: 10240
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1932

Björn Sigvaldason Mynd Almanak 1909
Björn Sigvaldason: Fæddur í Kelduhverfi í S. Þingeyjarsýslu 10. september, 1852. Tók nafnið Walterson. Dáinn 1932 í Winnipeg.
Maki: Kristín Hansdóttir f. árið 1846. Dáin 1913.
Börn: 1. Valgerður f. 1874, d. í Kinmount 2. Hannes f. 1877 í Ontario. 3. Valgerður f. 1886 í Argylebyggð í Manitoba.
Fluttu vestur til Kinmount í Ontario árið 1874. Þaðan lá leiðin til Marklands í Nova Scotia. Þar bjuggu þau rúm sex ár en fluttu þaðan til Winnipeg. Björn tók land í Argylebyggðinni árið 1882 og settist þar að 1883. Hann hætti búskap árið 1907 og skömmu síðar tók tengdasonur hans, Líndal J Hallgrímsson við búinu.
