ID: 9413
Fæðingarár : 1860
Dánarár : 1898
Björn Þorláksson fæddist 16. október, 1860 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn 9. apríl, 1898 í Mountain, N. Dakota.
Maki: 1884 Inga Jóhannsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1865, d. 8. september, 1944 í Alberta í Kanada.
Börn: 1. Jóhann 2. Lúðvíg 3. Pauline Loretta Laufey d. 19. maí, 1963. Upplýsingar um önnur þrjú börn þeirra vantar.
Björn flutti til Vesturheims árið 1873 með foreldrum sínum, Þorláki Jónssyni og Lovísu Níelsdóttur. Þau settust að í Shawano sýslu í Wisconsin en fluttu þaðan til N. Dakota 1879 og fór Björn með þeim. Hann var bóndi alla tíð nálægt Mountain.
