
Dýrunn Steinsdóttir Mynd A Century Unfolds
Dýrunn Steinsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 30. nóvember, 1856. Dáin 21. janúar, 1953 í Nýja Íslandi.
Maki: 1877 Gísli Árnason fæddist 25. desember árið 1851 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn 12. apríl, 1917.
Börn: 1. Guðrún f. 14. febrúar, 1877. Dáin 7. ágúst, 1943 2. Árni (Anderson) f. 1879 d. 1894 3. Steinunn f. 3. apríl, 1882. Dáin 31. júlí, 1946 4. Björn (Anderson) f. 3. nóvember, 1884. Dáinn 29. apríl, 1965 5. Magnús (Gislason) f. 8. maí, 1887. Dáinn 25. nóvember, 1961 6. Halldóra f. 20. desember, 1890. Dáin 18. febrúar, 1970 7. Árni Helgi f. 27. september, 1897.
Fjölskyldan flutti vestur árið 1883 og settust fyrst að á Gimli. Fluttu þaðan út í Mikley og bjuggu þar í 14 ár án þess að taka heimilisréttarland. Frá Mikley flutti Gísli í Ísafoldarbyggð og tók rétt á landi. Hrökklaðist þaðan vegna flóða 1901 og tók land í Framnes – og Árdalsbyggð og nefndi bæ sinn Víðirhól. Steinunn varð eftir á Íslandi en flutti vestur árið 1900.