Edward S Tryggvason

ID: 20055
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1906
Fæðingarstaður : Pembina

Edward Steinþór Tryggvason Mynd VÍÆ IV

Edward Steinþór Tryggvason fæddist í Pembina í N. Dakota 15. janúar, 1906. Johnson vestra.

Maki: 7. október, 1934 Ágústa Emilía Halldórsdóttir, f. 29. mars, 1907. Brynjólfsson vestra.

Börn: 1. Donald Edward f. 18. janúar, 1938 2. Gilbert Ágúst (August) f. 19. júní, 1940 3. Dick Marvin f. 15. ágúst, 1947.

Edward ólst upp hjá foreldrum sínum, Tryggva Jónssyni og Rósu Ingibjörgu Jónsdóttur, landnema í Pambina í N. Dakota. Edward fór í nám í Winnipeg, las viðskiptafræði í Success Business College. Flutti vestur að Kyrrahafi og var kaupmaður í Blaine. Ágústa var dóttir Halldórs Brynjólfssonar og Hólmfríðar Eggertsdóttur úr Húnavatnssýslu. Þau bjuggu á Birkinesi í Nýja Íslandi.