ID: 5313
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1936
Eggert Björnsson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1865. Dáinn í Vatnabyggð árið 1936.
Maki: Sigríður Björnsdóttir f. 9. mars, 1871 í Strandasýslu, d. í Vatnabyggð árið 1931.
Börn: 1.Ingibjörg Magnea d. um 1905 2. Hans 3. Björn Þórarinn 4. Herdís Guðný 5. Guðbjörg Fjóla (Ema) 6. Eggert Páll 7. Nýmundur Rögnvaldur 8. Þóra Jóhanna 9. Pauline.
Eggert fór vestur með föður sínum, Birni Sigvaldasyni árið 1888. Eggert bjó eitthvað í Bandaríkjunum en nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904 og flutti á það árið 1905.

Aftari röð: Nýmundur, Ema, Hans, Björn og Paul. Fremri röð: Þóra (Thora) Eggert, Sigríður, Pauline og Herdís. Mynd RbQ
