Eggert Gunnlaugsson

ID: 6999
Fæðingarár : 1835
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1914

Eggert Gunnlaugsson fæddist 7. ágúst, 1835 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn 14. janúar, 1914 í N. Dakota.

Maki: Rannveig Rögnvaldsdóttir f. í Skagafjarðarsýslu árið 1849.

Börn: 1. Sigtryggur f. 1873 2. Kristín Sigríður f. 1875, d. 1878 3. Drengur f. 1877, d. 1877 4.  Karl Vilhjálmur f. 1878 5. Jón f. 1879, d. 1951 6. Þórstína Sigríður f. 1883, d. 1951 7. Gunnlaugur Bjarni (G. B. Gunlogson) f. 10. júní, 1887 8. Ingibjörg Ruth f. 1890.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba með drenginn Sigtrygg árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Nam land í Víðirnesbyggð og nefndi Miklabæ. Fluttu þaðan árið 1880 og námu land í Akrabyggð í N. Dakota.