Eggert Sigurgeirsson

ID: 8634
Fæðingarár : 1861
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Eggert Sigurgeirsson Mynd VÍÆ IV

Eggert Sigurgeirsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu 9. desember, 1861.

Ókvæntur og barnlaus

Fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1888 með móður sinni, Ingibjörgu Jónsdóttur og systkinum. Hann var fyrst í borginni hálft annað ár, fór svo þaðan til Gimli. Árið 1892 nam hann land í Mikley í Nýja Íslandi og nefndi Sunnuhvol. Bjó þar félagsbúi með móður sinni og systkinum.