Eiður Jósepsson

ID: 9256

Eiður Jósepsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu árið 1887. Skrifaður Jósefsson vestra.

Maki: 1) 1909 Jóhanna Sigurðardóttir d. 1915. Hún var dóttir Sigurðar Pálssonar og Sesselju Pálsdóttur sem bjuggu í Hallson 2) Ásta Jóhannesdóttir  f. 11. janúar, 1896 í Roseau í Minnesota. Hún var dóttir Jóhannesear Jóhannssonar og Guðrúnar Sigríðar Halldórsdóttur í Pine Valley byggð.

Börn: með Jóhönnu 1. Pálína 2. Lára 3. Sigurður. Með Ástu 1. Jóhanna Sigrún 2. Lilja 3. Guðrún Sigríður 4.  Guðný Kristjana 5. Emelía Ragnheiður 6. Anna Katrín.

Eiður fór vestur með foreldrum sínum, Jósep Jónssyni og Guðrúnu Kristjánsdóttur árið 1900. Þau settust að í Pembina í N. Dakota. Eiður flutti til Hallson í N. Dakota árið 1910. Þaðan lá leiðin í Pine Valley byggð árið 1917.