
Einar B Johnson Mynd VÍÆ V
Einar Björnsson fæddist í N. Múlasýslu 27. febrúar, 1973.
Maki: 1917 Sigurbjörg (Susan) Einarsson f. 22. mars, 1898, d. 8. nóvember, 1957.
Börn: 1. Stefanía f. 1918 2. Jóhann Albert f. 1919, d. 18. september, 1959 3. Emil f. 1921 4. Lorne Allan f. 1926 5. Einar Jón f. 1928 6. Nelson f. 1930 7. Aenone f. 1937.
Einar var sonur Björns Jónssonar og Stefaníu Sigfúsdóttur sem vestur fluttu til Manitoba árið 1892. Þau settust fyrst að í Vestfoldbyggö en 1894 fluttu þau í Grunnavatnsbyggð þar se, Björn bjó til dauðadags. Að föður sínum látnum tók Einar við og en eftir nokkur ár flutti hann til Oak Point þar sem hann gerðist mikill athafnamaður. Byrjaði á mikilli nautgriparækt og stundaði líka fiskveiðar. Hann rak bæði lengi fisk- og nautgripaverslun.
