Einar Björnsson

ID: 10393
Fæðingarár : 1879

Einar G Björnsson Mynd VÍÆ II

Einar Gísli Jóhannes Björnsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 12. febrúar, 1879.

Maki: 2. desember, 1900 Stefanía Guðrún Sigtryggsdóttir f. 20. mars, 1882 í Eyjafjarðarsýslu.

Börn: 1. Emily f. 21. febrúar, 1906 2. Laura f. 20. maí, 1911 3. Haraldur f. 30. mars, 1914 4. Friðrik f. 15. mars, 1916 5. Hansína f. 6. janúar, 1918 6. Guðmundur f. 24. mars, 1921.

Foreldrar Einars, Björn Björnsson og Guðný Vilhelmína Einarsdóttir fluttu vestur til Manitoba árið 1883 og Einar með. Þau námu land í Argylebyggð og þar ólst Einar upp og festi þar rætur. Hann gerðist bóndi í byggðinni en flutti svo í bæinn Glenboro þegar árin færðust yfir. Foreldrar Stefaníu voru Sigtryggur Stefánsson og Guðrún Jónsdóttir, sem vestur fluttu árið 1882 og settust að í Argylebyggð.