Einar Einarsson

ID: 10946
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1937

Fyrir aftan; Arngrímur og Anna. Fyrir framan Kristbjörg, Einar og Sigurður. Mynd RbQ

Einar Einarsson fæddist árið 1866 í S. Þingeyjarsýslu. Ættarnafnið Grandy vestra. Dáinn í Seattle árið 1937.

Maki: Katrín Sigurðardóttir f. í N. Múlasýslu árið 1860.

Börn: 1. Anna 2. Arngrímur 3. Stefán Sigurður 4. Kristbjörg 5. Einar.

Einar fór vestur árið 1883 til Winnipeg í Manitoba með móður sinni, ekkjunni Ágústu Magnúsdóttur og bróður sínum, Magnúsi.  Einar fór sama ár  suður í Garðarbyggð þar sem hann nam land. Katrín flutti vestur árið 1887. Einar og Katrín fluttu árið 1906 í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land norður af Wynyard. Einar gaf land undir skóla og var hann nefndur Grandyskóli.