Einar Jónsson

ID: 11346
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1925

Einar Hermann Jónsson Mynd Almanakið 1916

Einar Hermann Jónsson fæddist 2. desember, 1854 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn 28. nóvember, 1925 í Spanish Fork. E.H. Johnson í Utah.

Maki: 1) 26. nóvember, 1885 Guðrún Hallgrímsdóttir f. 1857 í S. Þingeyjarsýslu, d. í Minnesota 19. september, 1889 2) 26. júní, 1890 Ingibjörg Árnadóttir f. 2. desember, 1856, d. 10. janúar, 1913.

Börn: Með Guðrúnu 1. Emilia 2. Willis. Með Ingibjörgu 1. Einar Hermann.

Einar flutti til Kanada árið 1879 og dvaldi eitthvað í Ontario. Fór þaðan til N. Dakota árið 1884 þar sem hann bjó til ársins 1886. Þaðan fóru hann og Guðrún til Duluth í Minnesota og þar lést Guðrún. Hann kvænist Ingibjörgu í Helena í Montana þar sem þau bjuggu einhvern tíma áður en þau settust að í Spanish Fork í Utah.

Íslensk arfleifð :