Eiríkur Sigfússon

ID: 13162
Fæðingarár : 1890

Eiríkur Sigfússon Mynd VÍÆ I

Eiríkur Sigfússon fæddist í N. Múlasýslu 13. október, 1890.

Maki: 2. febrúar, 1920 Guðríður Einarsdóttir f. 18. febrúar, 1897 í A. Skaftafellssýslu.

Barnlaus.

Eiríkur flutti til Vesturheims árið 1911 og fór til Manitoba. Hann var í kanadíska hernum 1916-1919. Vann fyrst við fiskveiðar á Winnipegvatni en seinna settist hann að í Hnausabyggð og var með búskap.