
Eiríkur Sigurðsson og Guðrún Magnúsdóttir með dótturina Ingunni um 1900. Mynd Hnausa Reflections
Eiríkur Sigurðsson fæddist í N. Múlasýsla 3. mars, 1836. Dáinn 21.janúar, 1914
Maki: 13. september, 1862 Ingunn f. 4.maí, 1836 í S. Múlasýslu. Dáin 1893
Börn: 1. Gufinna f. 24.mars, 1863. Dó dagsgömul. 2. Þórunn f. 3.mars, 1865. Dáin 27. janúar, 1911 3. Guðfinna f. 29.maí, 1866. Dáin 29.júlí, 1931 4. Oddur f. 9.mars, 1873. Dáinn 1899 5. Bjarni f. 4.júlí, 1874. Fór ekki vestur. 6. Guðrún Ingibjörg f. 8.maí, 1880. 7. Eiríkur átti dóttur með Guðrúnu Magnúsdóttur: Ingunn (Inga) María f. 25. mars, 1896. 8. Eiríkur og Ingunn ólu upp dreng: Kristján Jakob Jónasson f. í Hnausabyggð, sonur Jónasar Jónssonar og Steinunnar Jónsdóttur.
Þau fóru vestur árið 1876 og settust að í Breiðuvík í Hnausabyggð. Nefndi Eiríkur staðinn Eiríksstaði. Árið 1881 fluttu þau á annað land, Eyrarbakka í sömu byggð. Enn fluttu þau um set og nú út í Mikley. Þar hét Vogur og bjó Eiríkur þar til dauðadags.
