
Elín Björg Jónsdóttir 1921 Mynd RbQ
Elín Björg Jónsdóttir fæddist 1881 í S. Múlasýsla. Dáin 15. október, 1971 í Vancouver.
Maki: 1) Sigbjörn Þorvarðarson f. 1875 2) 10. mars, 1915 Ingvar Ólafsson fæddist í Gullbringusýslu 25. desember, 1873, d. 11. desember, 1938 í Saskatchewan.
Börn: Með Sigbirni 1. Ágúst Björgvin Sigbjörnsson f. 1900. Með Ingvari 1. Thelma 2. Bennett f. 29. mars, 1930.
Elín og Sigbjörn bjuggu í Steinholti í S. Múlasýslu árið 1901 og voru þar líka foreldrar Elínar og faðir Sigbjörns. Tveimur árum seinna eða 1903 fara Sigbjörn og Elín vestur til Kanada en foreldrar Elínar og systkini hennar fara frá Búðum í Fáskrúðsfjarðarhreppi vestur til Kanada árið 1905. Ingvar fór 14 ára gamall með föðurbróðursínum og fjölskyldu hans vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Þau fóru vestur í Þingvallabyggð og var Ingvar þar næstu tvö árin. Eftir það vann hann ýmist hjá bændum á ýmsum stöðum eða stundaði fiskveiðar. Hann settist að við Foam Lake í Vatnabyggð árið 1903 og fékkst við búskap og rak jafnframt verslun í Wadena. Seinna flutti hann í Kandahar/Dafoe byggð, keypti þar land og byggði hús.
