Elísabet Hrefna Thorsteinsson fæddist í Manitoba 14. júní, 1903. Dáin 9. nóvember, 1943 í Winnipeg.
Maki: 1924 Bjarni Jónsson fæddist 19. október, 1895 í Árnessýslu. Goodman vestra.
Börn: 1. Robert Gordon f. 19. mars, 1924 2. Elmer Kenneth f. 13. október, 1925 3. Lillia Bernice f. 1926 4. Helen Joyce f. 21. júní, 1930 5. Jón Ragnar f. 1. maí, 1938.
Foreldrar Elísabetu voru Hjálmur Thorsteinsson og Sigríður Hjálmsdóttir er vestur fluttu á síðasta áratug 19. aldar. Bjarni flutti til Vesturheims árið 1900 með foreldrum sínum, Jóni Guðmundssyni og Sigríði Bjarnadóttur, landnemum í Grunnavatnsbyggð 1902. Bjarni gerðist fyrst bóndi við Hove í Manitoba en árið 1920 flutti hann til Winnipeg og gerðist þar rakari. Rakarastofa hans var á 195 Hargrave St.
