Elísabet Jóhannesdóttir

ID: 4211
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1960

Elísabet Jóhannesdóttir fæddist í Dalasýslu 20. ágúst 1886. Dáin í Akrabyggð í N. Dakota 20. janúar, 1960.

Maki: 15. febrúar, 1905 Ásgeir Jónasson f. 5. apríl, 1877 í Dalasýslu, d. í N. Dakota 30. júlí, 1940.

Börn: 1. Ásgeir f. 1900 2. Jóhanna f. 1906 3. Óskar f. 2. júlí, 1909 4. William J. f. 21. janúar, 1912 5. Ásgerður f. 1918 6. Mae f. 26. nóvember, 1917, d. 1995 7. Cora f. 1921 Norman f. 1922 8. Elísabet (Elizabeth) f. 1928. Heimild til sem telur börn þeirra hafa verið fleiri, upplýsingar vantar.

Elísabet fór vestur árið 1891 með foreldrum sínum, Jóhannesi Halldórssyni og Guðrúnu Jónsdóttur sem settust að í Akrabyggð í N. Dakota. Ásgeir flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Jónasi Sturlaugssyni og Halldóru Halldórsdóttur. Þau settust að í Akrabyggð í N. Dakota. Þar ólst Ásbjörn upp og bjó alla tíð. Eftir lát hans hélt Elísabet áfram búskapnum með dyggri aðsoð Óskars sonar síns.