Eygerður Jónsdóttir

ID: 18394
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1895

Eygerður Jónsdóttir fæddist 31. desember, 1895 í Hallson í N. Dakota

Maki: 15. júní, 1926 Ólafur Björn Bernhöft  fæddist í Hallson 13. september, 1892.

Börn: 1. Doris Jon f. 21. maí, 1927 2. Orville f. 20, maí, 1932 3. Edward Theodore f. 11. júní, 1934.

Eygerður var dóttir Jóns Gíslasonar, bónda í Hallson og Halldóru Jósefsdóttur, sem vestur fluttu frá Akranesi árið 1888. Hún gekk í verslunarskóla í Grand Forks og vann eftir það við bókhald og hraðritun. Ólafur var sonur Edward L A Bernhöft og Sigurbjargar S Ólafsdóttur í N. Dakota. Að loknu grunnskólanámi fór Ólafur í verslunarskóla í Grand Forks en lærði seinna hárskurð. Í þrjú ár annaðist hann bókhald fyrir Björn Þorvaldsson, sem rak bílasölu í Cavalier í N. Dakota. Þá tók við starf við póstþjónustu í íslensku byggðinni í N. Dakota í nærri 30 ár.