Eyjólfur Eyjólfsson

ID: 12837
Fæðingarár : 1844
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Eyjólfur Eyjólfsson Mynd FLNÍ

Signý Pálsdóttir Mynd FLNÍ

Guðbjörg Pálsdóttir Mynd FLNÍ

Eyjólfur Eyjólfsson fæddist 1. nóvember, 1844 í N. Múlasýslu.

Maki: 1) 4. nóvember, 1868 Signý Pálsdóttir f. 31. janúar, 1848, d. 21. desember, 1913. 2) Guðbjörg Pálsdóttir f. 14. október, 1854, d. 1. apríl, 1921. Þær voru systur.

Börn: Með Signýju 1. Páll f. 14. apríl, 1870, d. 1905 2. Ásmundur f. 20. ágúst, 1873. Fjögur önnur börn þeirra dóu í æsku.

Eyjólfur flutti vestur með fjölskyldu sína, svo og tengdamóður sína, Þóru Eiríksdóttur, og hennar börn árið 1876. Þau komu til Winnipeg í Manitoba sama ár, fóru norður til Nýja Íslands og settust að í Víðirnesbyggð. Þar hét Eyjólfsstaðir. Vorið 1880 flutti Eyjólfur til Winnipeg, vann þar sumarlangt en fór svo um haustið suður til N. Dakota og nam land í Fjallabyggð. Ekki var land það skráð á hann vegna þess að mælingar þar á landi höfðu ekki verið gerðar. Hann fór þaðan til baka og missti rétt sinn á landinu þar. Hann hélt áfram rétti sínum á Eyjólfsstöðum og seldi það land seinna. Hann nam líka land í Álftavatnsbyggð í Manitoba en flutti þangað aldrei. Festi því rætur í Winnipeg og bjó þar alla tíð.