Finnbogi Erlendsson

ID: 9430
Fæðingarár : 1836
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1912

Finnbogi Erlendsson , Kristjana Hermannsdóttir og dætur þeirra Guðrún Kristín og Anna Margrét. Mynd SÍND

Finnbogi Erlendsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1837. Dáinn í N. Dakota árið 1912.

Maki: 1) Guðrún Sigurðardóttir 2) Kristjana Hermannsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1844.

Börn: Finnbogi og Guðrún eignuðust þrjú börn sem öll dóu í æsku. Með Kristjönu 1. Guðrún Kristín f. í N. Dakota 2. Anna Margrét f. í N. Dakota. Einn son eignuðust þau sem dó í æsku.

Finnbogi og Kristjana fluttu vestur um haf til Winnipeg í Manitoba árið 1883 og fóru sama ár í Fjallabyggð í N. Dakota.