Friðbjörn Friðbjörnsson

ID: 8001
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Friðbjörn Friðbjörnsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1864.

Maki: 1890 Margrét Halldórsdóttir f. í Dalasýslu árið 1869, d. í Smeaton í Saskatchewan 14. desember, 1932.

Börn: 1. Friðbjörn f. 1892 2. Halldór f. 1893 3. Friðjón f. 1895 4. Anna f. 1896 5. Sigurrós f. 1898 6. Magnús f. 1901 7. Hans Bogi f. 1903, d. 1925 8. Sidney Harold f. 1906, d. 1907 9. Margrét Kristín f. 1907 10. Harold Sidney f. 1910, d. 1937 11. Charles T Russell f. 1911.

Friðbjörn fór vestur til Ontario í Kanada með foreldrum sínum, Friðbirni Björnssyni og Önnu S Árnadóttur árið 1873. Þaðan lá leiðin til Nýja Íslands og loks til Mountain í N. Dakota árið 1881. Friðbjörn og Margrét bjuggu fyrst í Mountain, fluttu svo þaðan til Sherwood í N. Dakota og loks 1928 til Smeaton í Saskatchewan.