
Séra Friðrik Bergmann og Guðrún Thorlacius Mynd PIP

Heimili séra Friðriks og Guðrúnar á Spence St. í Winnipeg. Mynd JÞ
Friðrik Bergmann Jónsson fæddist 15. apríl, 1858 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Winnipeg 11. apríl, 1918.
Maki: 15. apríl, 1888 Guðrún Ólöf Magnúsdóttir Thorlacius f. 29. september, 1855, d. 10. september, 1938.
Börn: 1. Magnea Guðrún f. í Garðar 23. desember, 1889 2. Jón Halldór f. í Garðar, 14. janúar, 1891 3. Ragnar Steingrímsson f. í Garðar, 16. ágúst, 1892, d. í Detroit 27. júlí, 1950 4. Elízabet Valgerður f. í Garðar 31. maí, 1895.
Friðrik fór vestur um haf til Wisconsin í Bandaríkjunum árið 1875 og var fyrsta árið hjá séra Páli Þorlákssyni. Innritaðist í norska latínuskólann í Decorah í Iowa og útskrifaðist árið 1881. Nam guðfræði í Noregi árin 1883 -1885, innritaðist í guðdræðideild Lutheran Seminary í Philadelphia haustið 1885 og útskrifaðist þaðan 1886. Vígður prestur 17. júní sama ár og tók kalli frá söfnuðum í íslensku byggðinni í N. Dakota. Lét af presstörfum í N. Dakota árið 1902 og flutti til Winnipeg þar sem hann starfaði til æviloka.
