Friðrik Guðmundsson

ID: 8545
Fæðingarár : 1889

Friðrik Guðmundsson Mynd VÍÆ I

Sigrún S Sigvaldadóttir Mynd VÍÆ I

Friðrik Eyfjörð Guðmundsson fæddist á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu 19. maí, 1889.

Maki: 1) 4. desember, 1912 Ásta Emilía Árnadóttir f. í S. Múlasýslu 10. mars, 1898 2) 17. júní, 1950 Sigrún Sumarrós Sigvaldadóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 20, júlí, 1892.

Börn:  Öll með Ástu: 1. Magnús Sigurður f. 24. september, 1920 2. Guðlaugur Sæmundur f. 29. maí, 1922 3. Ingvar f. 6. ágúst, 1925 4. Leó f. 11. desember, 1932 5. Gunnar f. 28. ágúst, 1936 6. Guðrún Emilía f. 7. febrúar, 1937, fósturdóttir.

Friðrik flutti til Vesturheims árið 1904 með foreldrum sínum, Guðmundi Guðmundssyni Nordal og Margréti Sigurðardóttur og systkinum. Þau settust að í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1906 þar sem Friðrik ólst upp. Hann nam land nálægt Leslie og var þar bóndi til ársins 1950. Flutti þá til Selkirk í Manitoba. Þar stundaði hann smíðavinnu.