Friðrik L Kristjánsson

ID: 16978
Fæðingarár : 1887
Dánarár : 1958

Friðrik L Kristjánsson Mynd VÍÆ I

Friðrik Lúðvík Kristjánsson fæddist í S. Múlasýslu 8. maí, 1887. Dáinn í Winnipeg 5. október, 1958.

Maki: 11. júlí, 1912 Gestný Gestsdóttir f. 7. september, 1889 í Barðastrandarsýslu.

Börn: Kristinn f. 23. janúar, 1913, d. 27. febrúar, 1960 2. Hulda f. 14. desember, 1914 3. Vilberg Runólfur f. 24. desember, 1918 4. Jónína Björg f. 9. desember, 1920 5. Gestur f. 16. október, 1922 6. Evelyn f. 14. júní, 1924 7. Sigrún f. 16. júlí, 1926.

Friðrik flutti til Manitoba árið 1903 og fór til frænda síns, Árna Sveinssonar í Argylebyggð. Eftir nokkur ár flutti hann til Winnipeg og lærði múraraiðn. Þar bjó hann alla tíð, var virkur samfélagsmálum landa sinna í borginni. Gestný flutti til Winnipeg árið 1910.