Friðrik Sveinsson

ID: 8622
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1942

Friðrik Sveinsson Mynd Heimskringla

Friðrik Sveinsson fæddist 4. nóvember 1864 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Winnipeg 25. maí, 1942. Fred Swanson í Kanada.

Maki:  1892 Sigríður Laxdal Jónsdóttir f. í Eyjafjarðarsýslu 1857.

Children: 1. Auróra 2. Ólafía f. 18. mars, 1893 3. Rannveig f. 29. ágúst, 1895, d. 19. október, 1916 4. Elín f. 21. Ágúst, 1897, d. í Toronto 1962 5. Nanna f. 14. desember, 1900, d. í Winnipeg, 1959. Friðrik átti dóttur með Sigurbjörgu Sigfúsdóttur fyrir hjónaband: 1. Freyja f. 9. febrúar, 1890, d. 1939.

Friðrik flutti vestur til Kanada árið 1873 með fósturforeldrum sínum, Ólafi Ólafssyni frá Espihóli og Ólöfu Jónsdóttur. Með þeim flutti hann suður til Wisconsin og bjuggu þau í Milwaukee til ársins 1875. Fluttu þaðan til Nýja Íslands og 1879 í Garðarbyggð í N. Dakota. Þar var Friðrik með þeim fáein ár en flutti svo til Winnipeg og bjó þar alla tíð. Sigríður var dóttir Jóns Grímssonar Laxdal í Eyjafirði.