Friðrika Friðriksdóttir

ID: 9876
Fæðingarár : 1845
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1917

Friðrika Friðriksdóttir fæddist 25. febrúar, 1845 í S. Múlasýslu. Dáin í Keewatin í Ontario árið 1917.

Ógift.

Barn: Karl Jóhann Malmquist f. 11. september, 1871. Faðir hans var Sigurður Jóhannsson Malmquist af sænskum ættum.

Hún flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1914, samferða syni sínum og fjölskyldu hans. Bjó hjá honum alla tíð í Vesturheimi.