Fritz Carl Zeuthen fæddist 7. mars, 1865 í Reykjavík í Gullbringusýslu. Dáinn í Minneapolis 28. janúar, 1947.
Maki: 15. júlí, 1897 Margrét Ingibjörg Loftsdóttir f. í Minneota 25. apríl, 1877, d. í Minneapolis 2. júlí, 1964.
Börn: 1. Emilía f. 30. apríl, 1898 2. Inez Pauline f. 3. desember, 1901 3. Victor Earl f. 1. júní, 1904 4. Fritz f. 22. september, 1907 5. Leslie Valdimar f. 10. ágúst, 1910, d. 23. júní, 1931 6. Leon Haraldur f. 10. ágúst, 1910, tvíburi 7. Virginia Aðalbjörg f. 6. september,1912 8. Ralph Marinó f. 25. september, 1915.
Fritz var sonur Danans Fritz Wilhelm Zeuthen læknis fyrst á Eskifirði en svo í Reykjavík. Móðir hans hét Thora Emilie Rasmussen. Margrét Ingibjörg var dóttir Lofts Jónassonar sem vestur fór árið 1873 og settist að í Milwaukee í Wisconsin og seinna í Minnesota. Fritz flutti vestur um haf árið 1886 og settist að í Minneota í Minnesota. Þar bjuggu hann og Ingibjörg fyrstu árin, fluttu þaðan til Minneapolis þar sem þau voru einhver ár. Sneru aftur til Minneota einhvern tíma en enduðu svo með flest sín börn í Minneapolis.
