Geir Kristjánsson

ID: 5800
Fæðingarár : 1869
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1930

Geir Kristjánsson fæddist í Gullbringusýslu árið 1859. Dáinn í Vatnabyggð árið 1930. Christianson vestra.

Maki: Sesselja Rakel Sveinsdóttir f. 1873, d. 29. mars, 1915.

Börn: 1. Sigríður 2. Halldóra Kristín 3. Björg Sigurlína 4. Kristján William.

Þau fluttu vestur til Grand Forks í N. Dakota árið 1889. Þar vann Geir við trésmíði. Hann nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904 og þau fluttu á það árið 1905. Það var í Wynyardbyggð.

Geir, Sigríður, Sesselja Rakel, Halldóra, Björg og Kristján William. Fjölskyldan stendur við eldiviðarhrúgu sem var dýrmætasta eign sérhvers frumbyggja á hverju hausti landnámsáranna. Mynd RbQ