Geirfríður A Jónsdóttir

ID: 18587
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1900

Geirfríður A Jónsdóttir Mynd VÍÆ III

Geirfríður Aðalheiður Jónsdóttir fæddist í Winnipeg í Manitoba 13. júní, 1900. Fríða Erickson vestra.

Maki: 3. mars, 1920 Bjarni Eyþór Erickson f. í Svold, N. Dakota 26. desember, 1895.

Barnlaus.

Geirfríður var dóttir Jóns Geirssonar og Ragnheiðar Gísladóttur og bjó hjá þeim í Framnesbyggð í Nýja Íslandi til ársins 1912, fluttu þá til Winnipeg. Geirfríður og Bjarni hófu búskap í Winnipegosis en fluttu vestur til Bresku Kolumbíu árið 1942 og settust að í Steveston.