Gísli Bjarnason

ID: 15649
Fæðingarár : 1879
Fæðingarstaður : Rangárvallasýsla
Dánarár : 1972

Gísli Bjarnason

Gísli Bjarnason fæddist í Rangárvallasýslu 10. október, 1879. Dáinn í Spanish Fork 4. ágúst, 1972. Gill Bearnson og Gisli Bearnson vestra.

Maki: 1. 12. mars, 1902 Sarah Ann Tilley, d. 7. nóvember, 1903 2. Vilmina Christina f. 3. september, 1882.

Börn: Með Sarah 1. Sarah Ellen f. 7. nóvember, 1903. Með Vilmina 1. Fay, 2. Bertha 3. Wilma 4. Elva 5. Mildred 6. Bernice 7. Geraldine 8. Perry d. stutt eftir fæðingu 9. Sherman 10. Norma.

Gísli fór vestur til Utah með móður sinni, Jóhönnu Jónsdóttur, árið 1883 en þangað hafði faðir hans, Bjarni Jónsson flutt árið 1881 en hann dó í ágúst, 1883. Gísli var tekinn í fóstur af Pétri Valgarðssyni og var hann hjá honum næstu árin eða þar til hann gat farið að vinna fyrir sér. Hann fór í kolanámurnar í Scofield og gat með launum sínum þar fjárfest í skika lands. Hann kaus búskap og efnaðist vel.