Gísli Einarsson

ID: 13345
Fæðingarár : 1881

Gísli Einarsson fæddist á Höfn í Borgarfirði eystri  31. júlí, 1881.

Maki: 19. október, 1911 Sigurbjörg Jónsdóttir f. í Hnausabyggð í Nýja Íslandi 27. maí, 1883, d. 2. september, 1962.

Barnlaus.

Gísli var sonur Einars Þorkelssonar og Ingibjargar Gísladóttur sem bjuggu í Fljótstungu í Fljótsbyggð í Nýja Íslandi. Þau fluttu vestur 1889. Foreldrar Sigurbjargar voru Jón Björnsson og Margrét Guðmundsdóttir sem vestur fluttu árið 1876, bjuggu fyrst á Sandy Bar en seinna á Grund í Hnausabyggð.