Gísli Jónsson

ID: 13334
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1929

Börn standandi: Jón, Elín og Guðlaug Björg. Sigþrúður situr, þá Gísli og Vilborg. Mynd PaB 

Gísli Jónsson fæddist í N. Múlasýslu 27. júní, 1842. Dáinn í Nýja Íslandi 30. júní, 1929.

Maki: 1875 Vilborg Ásmundsdóttir f. 30. nóvember, 1855 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Elín María f. 13. september, 1877 2. Sigþrúður f.21. apríl, 1880 3. Jón f. 24. febrúar, 1881 4. Guðlaug Björg f. 26. desember, 1883 5. Gísli Ásmundur f. 1886, d. í Nýja Íslandi 1887 6. Sigurbjörn f. 20. júní, 1890. Eitt barn þeirra fæddist 1888  en dó mánaðargamalt.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 ásamt foreldrum Vilborgar, Ásmundi Ásmundssyni og Elínu Benediktsdóttur og bróður hennar, Guðmundi. Settust að í Árnesbyggð í Nýja Íslandi.