Gordon A Paulson

ID: 19882
Fædd(ur) vestra
Dánarár : 1966

Gordon Alex Paulson fæddist í Nýja Íslandi, d. 8. desember, 1966 í Winnipeg.

Maki: Magnea Guðrún Bergmann f. í Garðar, N. Dakota 23. desember, 1889.

Börn: 1. Frederick Bergmann f. í Winnipeg 23. júní, 1918, dáinn í Síðari heimstyrjöldinni árið 1944 2. Gordon Alex f. í Winnipeg 2. maí, 1923 d. 28. júní, 1945.

Gordon var sonur Kristjáns Péturssonar og Þorbjargar Kristjánsdóttur á Gimli. Hann gekk menntaveginn, stundaði nám í Wesley College í Winnipeg og lauk B.A. prófi árið 1912. Lögmaður á skrifstofu Pitplado & Co í Winnipeg. Mikill tónlistarmaður, var ungur maður í West Winnipeg Band og einn af stofnendum íslenska karlakórsins í Winnipeg. Magnea var dóttir séra Friðriks Bergmann og Guðrúnar Ó Thorlacius í Winnipeg.