ID: 12372
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Guðbjörg Árnadóttir fæddist í N. Múlasýslu 19. september, 1867.
Maki: Metúsalem Sigfússon f. árið 1860 í N. Múlasýslu. Metusalem (Matt) Josephson vestra.
Börn: 1. Árni William f. 1. desember, 1901 2. Aðalbjörg Stefanía (Stella) f. 12. ágúst, 1903.
Metúsalem flutti vestur til Minnesota árið 1893 og fór Guðbjörg þangað sama ár. Faðir hennar Árni Árnason hafði flutt vestur árið áður með Stefaníu dóttur sinni og fjölskyldu hennar. Metúsalem og Guðbjörg bjuggu í Lyon sýslu skammt frá Minneota en fluttu seinna vestur til Bresku Kólumbíu og bjuggu nærri Vancouver.
