Guðbjörg Björnsdóttir

ID: 20363
Fæðingarár : 1868

Guðbjörg Björnsdóttir  fæddist 17. júní 1868 í N. Þingeyjarsýslu. Snæfeld og Snifeld vestra.

Maki  2. janúar, 1890 Sigurgeir Einarsson f. árið 1857 í N.Þingeyjarsýslu, d. 12. maí, 1912.

Börn: 1. Kristbjörg f. 28. febrúar 1891 2. Björgvin 3. Sigríður f. 28.janúar, 1896, d. 20. ágúst, 1970 4. Sigrún  5. María f. 1903, d. 10.nóvember, 1931 6. Magnús Sigurbjörn f. 7.júní, 1905, d. 1. september, 1936.

Guðbjörg flutti vestur árið 1887 með Kristjáni bróður sínum Snæfeld. Sigurgeir flutti vestur með föður sínum, Einari og stjúpmóður, Ólafíu Handóttur árið 1878. Þau fóru til Nýja Íslands. Sigurgeir flutti þaðan til Winnipeg þar sem hann bjó nokkur ár. Flutti í Breiðuvík í Hnausabyggð þar sem faðir hans var kominn. Þeir bjuggu á Mýrum.